Þegar bakhjarlar félaganna PORTUSAR og SITUSAR, sem höfðu með höndum uppbyggingu tónlistar – og ráðstefnuhússins og byggingarrétt á lóðunum í kring, lögðu upp laupana í kjölfar efnahagskreppunnar haustið 2008 urðu ríki og borg sammála um að halda áfram framkvæmdum við byggingu hússins og var ákveðið að Austurhöfn-TR ehf. tæki verkefnið yfir. Viljayfirlýsing þessa efnis var undirrituð af Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra 19. febrúar 2009. Miðast allar áætlanir við að ekki þurfi að koma til aukin framlög ríkis og borgar frá því sem ákveðið var á árinu 2004 þegar framkvæmdir og rekstur tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar voru boðin út.
Í mars 2009 eignaðist Austurhöfn-TR félögin PORTUS og SITUS ásamt byggingarrétti á öllum reitum lóðarinnar Austurbakki 2. Samningsskilmálar þar um voru undirritaðir 31. mars 2009 af Austurhöfn, NBI hf., skilanefnd Landsbanka Íslands hf., menntamálaráðherra, fjármálaráðherra og borgarstjóra. Jafnframt var samið við Nýsi um kaup á hlutafé þess félags í Situsi ásamt ákveðnum byggingarrétti. Áframhaldandi fjármögnun framkvæmdanna var jafnframt tryggð og er hluti af samkomulaginu.
Jafnframt var gengið frá samkomulagi Austurhafnar-TR og ÍAV, Íslenskra aðalverktaka, um verkframkvæmdina allt til loka. Það byggir í aðalatriðum á fyrirliggjandi samningum en tekur á breyttum verktíma, ýmsum viðaukum, sparnaðarmöguleikum og öðrum ráðstöfunum sem nauðsynlegar eru til að tryggja farsæl verklok. Miðað er við að verkinu ljúki í febrúar 2011 og að húsið verði tekið í notkun um vorið 2011.
Þótt Austurhöfn-TR ehf. hafi leyst til sín byggingu mannvirkisins er gert ráð fyrir að um tímabundna ráðstöfun gæti verið að ræða. Austurhöfn-TR ehf. og dótturfélög þess munu vinna að heildaruppbyggingu alls svæðisins með það að markmiði að tryggja rekstrargrundvöll tónlistar- og ráðstefnuhússins og að öflug ferðaþjónusta og önnur atvinnustarfsemi geti náð fótfestu á þessu svæði.






Uppstokkun verkefnisins