Nýtt deiliskipulag Austurhafnar var samþykkt vorið 2006 og leysti af hólmi deiliskipulag svæðisins frá 1986. Skipulagssvæðið er 7,7 ha að stærð og afmarkast af Austurbugt, Austurhöfn og Pósthússtræti í vestri, Tryggvagötu í suðri, Lækjargötu og Sæbraut í austri og Faxagötu og Ingólfsgarði í norðri. Svæðið tilheyrir miðborgarkjarna Reykjarvíkur skv. Þróunaráætlun borgarinnar. Samhliða samþykkt nýs deiliskipulags fyrir Austurhafnarsvæðið voru gerðar breytingar á gildandi aðalskipulagi Reykjavíkur frá 2001-2024.
Meginmarkmið nýja deiliskipulagsins er að:
- Skapa umgjörð um tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðina sem verði virkur hluti miðborgarinnar og áberandi kennileiti borgarinnar.
- Skapa ramma fyrir aðlaðandi, þétt og fjölbreytt byggingarform fyrir verslun, þjónustu og íbúðir.
- Móta skjólsæl rými sem stuðli að öflugara mannlífi í miðborginni.
- Endurspegla í nýrri byggð mælikvarða miðborgarinnar og tengja við tónlistar- og ráðstefnumiðstöðina.
- Byggja upp öruggt umferðarkerfi þar sem sérstök áhersla er lögð á liðugt flæði gangandi umferðar og tengingar við nærliggjandi svæði.
- Leysa bílastæðaþörf svæðisins að stærstum hluta í kjallara.
Sjá nánar á vef skipulags- og byggingasviðs Reykjavíkurborgar






Gildandi deiliskipulag
Deiliskipulag Austurhafnar