Austurhöfn - tónlistarhús

Þú ert hérna Skipulagsmál

Skipulagsmál

Það gefur auga leið að huga þarf vel að skipulagsmálum við jafn umfangsmikla og metnaðarfulla framkvæmd og bygging tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar er.
  • Tillaga um afmörkun lóðar fyrir byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss og hótels (TRH) við Austurbakka Reykjavíkurhafnar var samþykkt árið 2000.  
  • Efnt var til alþjóðlegrar hugmyndasamkeppni um skipulag lóðarinnar og næsta nágrennis og voru úrslit tilkynnt í ársbyrjun 2002.
  • Í framhaldi af niðurstöðum hugmyndasamkeppninnar var unnið rammaskipulag fyrir svæðið frá Miðbakka að gatnamótum Faxagötu og Sæbrautar.
  • Rammaskipulagið var kynnt árið 2004 og var leiðbeinandi við samningskaupaferlið um einkaframkvæmd sem fram fór árin 2004-2005 og endaði með samningi Austurhafnar-TR við Portus Group um hönnun, byggingu og rekstur tónlistar- og ráðstefnuhússins.
  • Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið var kynnt haustið 2005 og tók gildi vorið 2006.
  • Sumarið 2009 efndu Faxaflóahafnir til hugmyndasamkeppni um skipulag Gömlu hafnarinnar, þar á meðal svæðisins þar sem tónlistar- og ráðstefnuhúsið er að rísa, og lágu útslit fyrir í desemberbyrjun 2009. Standa vonir til þess að verðlaunatillögurnar nýtist í vinnu við gerð heildarskipulags fyrir höfnina, bæði aðalskipulags og deiliskipulags.