Samningar um fjármögnun tónlistar- og ráðstefnuhússins í Reykjavík, Hörpu, eru á lokastigi. Þá verður hægt að ákveða opnunardag hússins og hefja markaðssetningu þess af krafti, segir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar.

Eftir mikinn samdrátt í ráðstefnu- og hvataferðamennsku í fyrra, lítur ferðaþjónustan með eftirvæntingu til þess að tónlistar og ráðstefnuhúsið Harpa í Reykjavík verði tekið í notkun. Pétur segir að nú séu að skapast forsendur til að setja kraft í markaðssetningu og að bóka viðburði í húsinu.
Ferðaþjónustan horfir með kvíða til þess að sífellt minni umsvif verði á veturna. Hvata- og ráðstefnuferðaþjónusta er einhver sú arðbærasta sem stunduð er og búast má við að eftir lægð vegna heimskreppu taki ráðstefnuhald við sér á ný innan skamms. Þá er mikilvægt að Harpa verði tilbúin og bókanir þéttar, en hingað til hafa ekki verið forsendur til þess.