Útisvæðið við Hörpu hlaut verðlaun í flokknum besta norræna almenningsrýmið við afhendingu norrænu arkitektaverðlaunanna sem veitt voru í fyrsta sinn í Gautaborg í gær.
Landslag hannaði svæðið í samstarfi við Batteríið arkitekta og í samráði við Henning Larsen Architects og Ólaf Elíasson listamann. Verkfræðiráðgjöf var á höndum Mannvits og Verkís.
Verkkaupi er Totus, dótturfélag Austurhafnar, og Reykjavíkurborg.
Verðlaun voru veitt í þremur flokkum: besta norræna byggingin, besta norræna almenningsrýmið og besta norræna bæjarskipulagið. Alþjóðleg dómnefnd valdi verkin eftir tilnefningar valnefnda í hverju hinna norrænu landa fyrir sig. Norskar teiknistofur unnu verðlaunin í hinum tveimur flokkunum.
Hér má sjá allar tilnefningarnar á heimasíðu Arkitekturmässan i Göteborg





Útisvæðið við Hörpu verðlaunað