Fjölmenni fylgdist með því þegar ljósin í glerhjúpi Hörpu voru tendruð á Mennignarnótt og var lýsingin við það tækifæri sérstaklega útfærð til samræmis við sólsetrið og birtuna um kvöldið, bæði í litum og styrkleika.
Lýsingin í glerhjúpnum er þannig útfærð að ljósadíóður með breytilegum styrkleika og margvíslegum litum er komið fyrir glerstrendingunum á suðurhlið hússins og hefur hönnuðurinn, Ólafur Elíasson, sett saman fjölmargar útgáfur eða uppstillingar af lýsingum sem birtast munu á komandi mánuðum og eru hluti af því listaverki sem glerhjúpurinn er.
Um 30 þúsund manns heimsóttu Hörpu á Menningarnótt og sóttu hina fjölmörgu viðburði sem þar voru í boði.






Fjölmenni fylgdist með þegar ljós voru tendruð í glerhjúp Hörpu