Austurhöfn - tónlistarhús

Þú ert hérna Fjölmiðlatorg Lýsing í glerhjúp Hörpu tendruð á Menningarnótt

Lýsing í glerhjúp Hörpu tendruð á Menningarnótt

harpa-opnun6Mikið verður um að vera á Menningarnótt við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu við Austurhöfnina og ná hátíðarhöldin hámarki þegar ljós verða tendruð í glerhjúp Hörpu í beinni sjónvarpsútsendingu rétt fyrir flugeldasýningu hátíðarhaldanna. Athöfnin er jafnframt þriðji og síðasti atburðurinn í opnunarferli hússins sem hófst með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í byrjun maí og opnu húsi í framhaldinu fyrir gesti og almenning.

Dagskráin í og við Hörpu á Menningarnótt hefst klukkan13 laugardaginn 20. ágúst og stendur fram undir klukkan 23 um kvöldið þegar ljósin í glerhjúp Hörpunnar verða kveikt. Sérstakir vígslutónleikar verða við glerhjúpinn kl. 13:15  þar sem frumflutt verða tvö verk fyrir hörpur eftir Mist Þorkelsdóttur og Atla Heimi Sveinsson og fanfare fyrir blásara og slagverk eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Af öðrum dagskrárliðum má nefna kínverska loftfimleikamenn sem munu leika listir sínar fyrir utan Hörpu, tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, sýningu færeysku listakonunnar Elinborgar Lutzen og opnun Jazzhátíðar Reykjavíkur í Norðurljósum kl 20. Lóðsbáturinn Magni mun mynda „sjávargosbrunn" fyrir norðan Hörpu og sjóstrætó siglir á hálftíma fresti um höfnina frá klukkan sjö til miðnættis. Fjölmargir aðrir viðburðir á vegum Menningarnætur verða í húsinu en hátíðin verður sett formlega klukkan 13 af Jóni Gnarr borgarstjóra fyrir framan Hörpu.

Dagskrá við Hörpu á Menningarnótt:

13.00: Borgarstjóri setur Menningarnótt á útisviði fyrir framan Hörpu

13.05: Tónlistaratriði á útisviði - Reykjavík Jungle Unit

13.15: Vígslutónleikar við stóra vegginn

Mist Þorkelsdóttir: Ljósbrot fyrir 7 hörpur (frumflutningur)

Anna S. Þorvaldsdóttir: Skuggar, fanfare (frumflutningur)

Atli Heimir Sveinsson: Minning um Thor fyrir 9 hörpur (frumflutningur)

Drengjakór Reykjavíkur

13.15: Atriði á útisvæði (Trúðurinn Barbara, Maximús, Kramhúsið)

14.00: Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg

Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinsson

Efnisskrá: Maximús Músíkús

14.10: Stórsveit Seltjarnarness á útisvæði fyrir framan Hörpu

14.30: Kínverskir loftfimleikamenn

14.30: Listaverkaleiðsögn 

15.00: Opnun myndlistarsýningar með verkum Elinborgar Lutzen í Flóa

15.00: Músarhola Maxa vígð í Tólf Tónum

15.00: Kínverskir loftfimleikamenn

15.20: Heiðurssprautun Magna í höfninni norðan við Hörpu

15.30 – 17.30: Söngveisla Söngskólans í Reykjavík í Silfurbergi

15.30: Listaverkaleiðsögn

15.30 – 16.20: Tómas R. Einarsson & co í Flóa

16.00: Ingveldur Ýr & Spectrum í Kaldalóni

16.30: Kínverskir loftfimleikamenn

16.30: Listaverkaleiðsögn

17.00 Kínverskir loftfimleikamenn

17.00: Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg

Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinsson Einleikari: Stefán Ragnar Höskuldsson

Efnisskrá:

Glinka:
Ruslan & Ludmila, forleikur

Mozart:
Flautukonsert í D-dúr

Prokofiev:
Montag & Kapulet

Tchaikovsky:
Vals úr Þyrnirós

17.45-18.30: Varsjárbandalagið leikur í Flóa

18.00: Teitur frá Færeyjum leikur í Norðurljósum

19.00: Tríóið Kremkex í Flóa

20.00: Opnunartónleikar Jazzhátíðar Reykjavíkur í Norðurljósum

Jazzhátíð verður sett með stórtónleikum fjögurra hljómsveita sem verða fulltrúar Íslands á London Jazz Festival 12.
nóvember nk. Þetta verkefni er afrakstur vinnu Jazzhátíðar og Útóns til útbreiðsluu íslenska jazzins og stærsta
einstaka verkefnið hingað til til að kynna íslenskan jazz fyrir nágrönnum okkkar handan hafsins.

Hljómsveit Sunnu Gunnlaugsdóttur píanóleikara

Ómar Guðjónsson gítarleikari með kvartetti sínum

Frelsissveit Nýja Íslands  - Haukur Gröndal er formaður í þessum músíkalska áttæringi íslenskrar tónlistar

Samúel Jón Samúelsson Big Band dansar áfram á hárfínni línu fönks og afróbíts

20.00: Elísabet Waage og Björg Þórhallsdóttir í Flóa

22.40-50: Glerveggurinn tendraður og tónlistaratriði - sjónvarpað beint

23.00: Flugeldasýning

 

Annað: 

Sjóstrætó í samráði við Menningarnótt og hafnaryfirvöld. 19-24 á hálftíma fresti

Stutt dansatriði frá Kramhúsinu á stétt utan við húsið

Maximús á vappi um húsið og vígð músarhola í 12 Tónum

Kadilljákar til sýnis við austurhlið Hörpu

 

Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar