Austurhöfn - tónlistarhús

Þú ert hérna Fjölmiðlatorg Frímerki í tilefni af opnun Hörpu

Frímerki í tilefni af opnun Hörpu

 frimerkiÍ tilefni af opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í dag hefur Pósturinn gefið út frímerki tileinkað húsinu.

Um er að ræða smáörk með fimm frímerkjum sem taka mið af formi glerhjúpsins og eru því afar sérstök og eiga eftir að vekja mikla athygli segir í frétt á vef Póstsins í dag. Ólafur Elíasson hannaði frímerkin en verðgildi merkjanna fimm í smáörkinni er það sama, eða 50g innanlands (ígildi 75 króna).