Austurhöfn - tónlistarhús

Þú ert hérna Fjölmiðlatorg Ráðgjöf vegna hótels

Ráðgjöf vegna hótels

Eignarhaldsfélagið Situs ehf., dótturfélag Austurhafnar-TR, auglýsir eftir aðilum til að taka þátt í lokuðu útboði um ráðgjöf vegna hótels við Austurhöfnina í Reykjavík.

Valdir verða allt að fimm þátttakendur. Við valið verður reynsla, þekking og tæknileg geta lögð til grund­vallar. Situs óskar eftir samstarfi við ráðgjafa sem hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af því að leiða saman lóðarhafa og áhugasama fjárfesta og rekstraraðila og vera lóðarhafa til ráðgjafar við skipulag og samningagerð vegna fyrirhugaðs hótels.

Forvalsgögn liggja frammi á skrifstofu Situs, 5. hæð, Austurstræti 17, 101 Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 20. ágúst 2009. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á sama stað, eigi síðar en kl. 1615, mánudaginn 7. september 2009, merktum: Austurhöfn Hótel FORVAL.